Samantekt um þingmál

Greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs

362. mál á 151. löggjafarþingi.
Félags- og barnamálaráðherra.

Markmið

Að stuðla að því að íþróttafélög geti hafið óbreytta starfsemi að nýju eftir að þeim hefur verið gert að fella niður starfsemi á tilteknu tímabili skv. 1. gr., að hluta eða öllu leyti, vegna opinberra sóttvarnaráðstafana í tengslum við heimsfaraldur kórónuveiru. Með þessu er stefnt að því að sem minnstar raskanir verði á íþróttastarfi á Íslandi til lengri tíma litið vegna faraldursins.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að heimilt verði að greiða íþróttafélagi launakostnað vegna launamanna, að tilteknum skilyrðum uppfylltum, hafi hlutaðeigandi íþróttafélagi verið gert að fella tímabundið niður starfsemi, að hluta eða öllu leyti, vegna opinberra sóttvarnaráðstafana á tímabilinu frá 1. október 2020 til og með 30. júní 2021.

Breytingar á lögum og tengd mál

Um er að ræða ný lög.

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir að greiðslur úr ríkissjóði til íþróttafélaga vegna launakostnaðar muni nema um 500 milljónum kr. vegna tímabilsins 1. október 2020 til 30. júní 2021. Þá er gert ráð fyrir að kostnaður vegna umsýslu Vinnumálastofnunar við þróun hugbúnaðar geti numið um 12 milljónum kr. auk þess sem gert er ráð fyrir að stofnunin þurfi að bæta við tveimur stöðugildum.

Afgreiðsla

Samþykkt með nokkrum breytingum. Gildissvið frumvarpsins var víkkað svo að það næði til íþróttamanna, þjálfara, aðstoðarmanna og annarra sem tengjast æfingum og keppni íþróttafélaga samkvæmt launasamningi eða verktakasamningi til tiltekins tíma. Launatengd gjöld voru færð undir gildissvið laganna og hámark greiðslna lækkað úr 500.000 kr. á mánuði fyrir hvern launamann eða verktaka niður í 400.000 kr.

Aðrar upplýsingar

Íþrótta- og æskulýðsstarf: Umfangsmiklar stuðningsaðgerðir í bígerð. Mennta- og menningarmálaráðuneytið og félagsmálaráðuneytið, 31. október 2020.


Síðast breytt 07.01.2021. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.